Page 44

Jafntefli gegn Evrópumeisturunum

0

Tottenham hóf keppni í Webley bikarnum á föstudaginn gegn liði Barcelona. Margir höfðu vonast eftir að sjá Barcelona tefla fram einhverjum af stórstjörnunum sínum í leiknum. Gardiola tefldi hinsvegar fram ungu og óreyndu liði. Það er þó ekki hægt að tala um að þetta hafi verið slakt lið, því eins og flestir vita er unglingastarf Barcelona með því besta og afkastameira sem þekkist í fótboltanum. Auk ungu strákana í liði Barca mátti sjá nokkur þekkt andlit, þar á meðal Eið Smára Guðjónsen sem byrjaði leikinn í liði Barcelona. Harry Redknapp stjóri Tottenham stillti hinsvegar upp reyndum mönnum. Það var mikið um meiðsli og því átti Harry í vandræðum með að stilla upp í vörn og sókn. Dawson, Woodgate og  King voru allir fjarverandi í stöðu miðvarðar. Pavlyuchenko og Bent voru einnig fjarverandi sökum meiðsla og fyrirliðinn Keane átti einnig við smávægileg meiðsli að stríða og byrjaði leikinn á bekknum. Harry sá sér því þann kost vænstan að stilla upp í leikkerfi 4-5-1.

Fyrstu kaup sumarsins

0

Tottenham tilkynnti í dag fyrstu kaup liðsins í félagaskiptaglugganum þetta sumarið. Tottenham hefur fest kaup á tveimur ungum leikmönnum frá Sheffield United, Kyle Naughton og Kyle Walker. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að samtals hafi Tottenham greitt um 8 milljónir punda fyrir þá. Naughton er tvítugur hægri bakvörður en getur einnig spilað í vinstri bakverðinum. Walker er 19 ára gamall varnarmaður sem getur spilað hvar sem er í varnarlínunni, bæði miðvörð og bakverði. Naughton spilar strax í kvöld æfingaleik með varaliði félagsins en Walker er að keppa með U-19 ára landsliði Englands um þessar mundir.

 

Við bjóðum Naughton og Walker velkomna til félagsins.

Þriðji sigurinn í röð

0

Tottenham heimsótti Peterborough United í þriðja leik sínum á undirbúningstímabilinu. Harry stillti upp nokkuð sterku liði en þó fengu nokkrir ungir og óreyndir að spreyta sig hluta af leiknum. Leiknum lauk með stórsigri Tottenham 4-0 þar sem Bent, Defoe, Modric og Pavlyuchenko skoruðu mörkin.

Góður leikur gegn Bournemouth

0

Tottenham lék annan æfingaleik sinn á undirbúningstímabilinu gegn Bournemouth í kvöld. Eins og í leiknum gegn Exeter á miðvikudagskvöldið fengu sem flestir að spila og var þetta góð æfing fyrir strákana. Leiknum lauk með sigri Tottenham 3-0 líkt og á miðvikudagskvöldið. Markaskorarar kvöldsins voru þeir Keane, Defoe og Palacios.

Gunter til Nottingham Forest

0

Tottenham og Nottingham Forest hafa komist að samkomulagi um kaup síðarnefnda liðsins á Chris Gunter.  Gunter kom til Tottenham í janúar 2008 en náði ekki að festa sig í sessi í liðinu enda margir að bítast um stöðu hægri bakvarðar. Hann spilaði alls 16 leiki fyrir aðalliðið í öllum keppnum. Í mars sl. var hann lánaður til Forest út tímabilið og hefur nú gengið endanlega til liðs við þá svo framarlega sem hann standist læknisskoðun.

 

Við þökkum Gunter kærlega fyrir framlag hans til liðsins um leið og við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.

Sigur í fyrsta leik

0

Leikmenn Tottenham eru mættir aftur til æfinga eftir sumarleyfi og fyrsti leikurinn á undirbúningstímabilinu gegn Exeter búinn. Leikurinn fór fram í kvöld (15.7) á ST. James‘ Park. Liðsuppstillingin gaf það til kynna að um var að ræða æfingaleik, því margir ungir óreyndir leikmenn byrjuðu leikinn. Það var svo sem aldrei spurning hvort liðið væri betra í leiknum þrátt fyrir að margir af betri leikmönnum Tottenham sætu á bekknum til að byrja með. Byrjunarliðið skipuðu þeir
Cudicini, Hutton, Chimbonda, Dervite, Corluka, Bentley, Huddlestone, O‘Hara, Rose, Defoe, Keane

 

Það vakti einnig athygli viðstaddra að Harry Redknapp var ekki við stjórnvölin en var mættur í stúkurnar í síðari hálfleik.

Zokora til Sevilla

0

Tottenham tilkynnti í dag að félagið hafi komist að samkomulagi við Sevilla um kaup þess síðarnefnda á Didier Zokora. Kaupverðið var þó ekki gefið upp. Zokora kom til Tottenham frá St. Etienne sumarið 2006 og spilaði alls 134 leiki fyrir félagið.

 

Við þökkum honum kærlega fyrir framlag hans til liðsins um leið og við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.

Liverpool í fyrsta leik

0

Leikjaplanið fyrir komandi leiktíð var gefið út í morgun en það mun þó taka einhverjum breytingum á næstu dögum þegar sjónvarpsleikir verða ákveðnir. Það eru þó helst tímasetningar sem munu breytast og leikir færðir á sunnudaga og mánudaga. Tottenham byrjar á sannkölluðum stórleik því þeir fá Liverpool í heimsókn á White Hart Lane í fyrsta leik. Ekki er hægt að segja að upphaf tímabilsins verði liðinu auðvelt því liðið mætir þremur af þessum svokölluðu topp 4 liðum í 6 fyrstu leikjunum, þeim Liverpool (heima), Manchester United (heima) og Chelsea (úti). Lok tímabilsins verður sömuleiðis ekki af auðveldara tagi því liðið mætir einnig þremur af topp 4 liðunum í fimm síðustu leikjunum, þeim Arsenal (heima), Chelsea (heima) og Manchester United (úti). Stórleikirnir við Arsenal verða dagana 31.október á Emirates og 10.apríl á White Hart Lane, en athygli skal vakin á því að dagsetningar leikja geta breyst á næstu dögum.

 

Leikjaplanið í heild sinni má sjá undir "Liðið" – "Leikir og úrslit" hér vinstra megin á síðunni.

Mark tímabilsins?

0

Nú hefur til gamans verið sett af stað könnun hér vinstra megin á síðunni um mark tímabilsins að ykkar mati. Mörg skemmtileg og stórglæsileg mörk voru skoruð á tímabilinu en fimm mörk hafa verið tilnefnd og er það nú í ykkar höndum að velja það mark sem ykkur þótti besta markið á tímabilinu. Sunnudaginn 12.júlí verður svo tilkynnt hvaða mark heillaði stuðningsmenn Tottenham á Íslandi mest.

 

Tilnefningarnar eru eftirfarandi:

Spurs leikur í Asíu í sumar.

0

Tottenham hefur staðfest þátttöku sína í Barcley‘s Asia Trophy í Peking í sumar. Keppnin sem hóf  göngu sína árið 2003 hefur verið á tveggja ára fresti. Þrjú lið úr ensku úrvalsdeildinni taka þar þátt ástamt liðum gestgjafana. Tottennham hefur þátttöku þann 29 júlí gegn nágrönnum sínum í West Ham. Þar sem þessi keppni er útsláttarkeppni munu aðrir leikdagar ráðast eftir gengi liðsins. Þriðja liðið frá Englandi er Hull City. Það mun því vera skemmtilegt fyrir bræðurna Michael Dawson (Tottenham) og Andy Dawson (Hull) að keppa við hvorn annan hinumegin á hnettinum.

 

Nýjustu fréttirnar