Page 19

Vertonghen á leiðinni frá Ajax

0

Náðst hefur samningur við Ajax um kaup á Jan Vertonghen, með fyrirvara um að hann standist læknisskoðun.

 

Síðasta tímabil var besta tímabils Belgíska landsliðsmannsins til þessa – hann var settur sem fyrirliði Ajax í upphafi tímabils og leiddi liðið til annars meistaratitilsins í röð.  

 

Miðherjinn þótti standa sig frábærlega og var útnefndur leikmaður ársins í deildinni og besti leikmaður ársins hjá Ajax.  Hann skoraði 10 mörk í 37 leikjum.

 

– Hann spilaði alls 155 leiki fyrir Ajax og skoraði í þeim 28 mörk.

– Fæddur 24. apríl 1987

– 189 cm á hæð

– 37 landsleikir og 2 mörk

André Villas-Boas tekinn við

0

Í gær var ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Tottenham eftir að Daniel Levy lét Redknapp fara í sumar …. miklar vangaveltur hafa verið með stjórastöðuna , en Villa-Boas sem var rekinn frá Chelsea var mikið í umræðunni.  Í gær var hann svo ráðinn á þriggja ára samning.  Metnaðarfull ráðning hjá Tottenham sem ætla sér greinilega að koma klúbbnum áfram og fara að berjast um titilinn …..  ( heyrst hefur að Villa-Boas fái um 50M punda til að kaupa leikmenn fyrir næsta tímabil )

Skráning í klúbbinn ….

0

Skáning í Totttenhamklúbbinn á Íslandi er í fullum gangi núna ……  hægt er að skrá sig með því að smella HÉR = https://spurs.is/index.php?option=com_facileforms&Itemid=74   eða með því að senda póst á spurs(at)spurs.is ,   þar sem þarf að koma fram Nafn ,  Kennitala,  Heimilisfang  og e-mail

.

Áfram Tottenham   –  COYS

 

 

Skráning í klúbbinn ….

0

Nú styttist óðum í nýtt tímabil á Englandi ……    Tottenham eru komnir með nýjan stjóra ( Villa-Boas ) og ætla sér stóra hluti á næsta tímabili.   Gylfi Sigurðsson var keyptur í dag og líst mér og öðrum Tottenham aðdáendum mjög vel á það enda fantagóður leikmaður þar á ferð sem á bjarta framtíð fyrir sér …  Tottenham hefur ávallt verið vinsælt lið á Íslandi þó að ekki hafi allir stuðningsmenn skráð sig í stuðningsmannaklúbb Tottenham á Íslandi.

ALLT AÐ GERAST HJÁ TOTTENHAM

0

Í gær var ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Tottenham eftir að Daniel Levy lét Redknapp fara í sumar …. miklar vangaveltur hafa verið með stjórastöðuna , en Villa-Boas sem var rekinn frá Chelsea var mikið í umræðunni.  Í gær var hann svo ráðinn á þriggja ára samning.  Metnaðarfull ráðning hjá Tottenham sem ætla sér greinilega að koma klúbbnum áfram og fara að berjast um titilinn …..  ( heyrst hefur að Villa-Boas fái um 50M punda til að kaupa leikmenn fyrir næsta tímabil )

 

Tottenham gekk svo í dag frá kaupum á Gylfa Sigurðssyni landsliðsmanni Íslands frá Þýska liðinu Hoffeinheim.   Gylfi var á láni hjá Swansea seinni hluta síðasta tímabils og stóð sig einstaklega vel og skoraði 7 mörk í 19 leikjum … ásamt því að hafa ná því fyrstur Íslendinga að hafa verið kjörinn leikmaður mánaðarins í Ensku Úrvalsdeildinni.

Kaupverðið er talið vera um 8 M punda og greina netmiðlar frá því að vikulaun hans séu í kringum 50k á viku ( þannig að Gylfi ætti að hafa fyrir salti á grautinn :o)   ).

Óskum við Tottenham til hamingju með þessi kaup og eins óskum við Gylfa góðs gengis á nýjum vettvangi og vonum til að hann eigi eftir að blómstra í hvítu treyjunni á Norður London. 

Image

Miðakaup á WHL 2012-2013

0

Dagsetningar vegna miðakaupa á White Hart Lane fyrir tímabilið 2012  – 2013 er komið hérna inn á síðuna –  undir miðakaup hérna vinstra megin.   Tottenhamklúbburinn úti virðist ætla að gefa stuðningsklúbbum tækifæri á nýjan leik að fá miða á Category A leiki  ( stóru liðin ) og hefur klúbburinn sótt um miða á alla þessa stóru leiki fyrir veturinn.  Það kemur svo í ljós þegar miðar fara í sölu til members hvort að við fáum miða á leikinn eður ei … þarna er alla vega smá von að fá miða á þessa stórleiki þar sem Tottenham voru búnir að taka fyrir þetta fyrir ca. 2-3 árum.

 .

kv

Stjórnin

 

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins

0

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins verður haldinn á Ölver í Glæsibæ, fimmtudaginn 31.maí kl. 20.00.  Dagskrá fundarins :

 

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Reikningar síðasta árs
  3. Kosning stjórnar
  4. Önnur mál

 .

Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum.  Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbins má hinn sami hafa láta vita á e-mailið spurs@spurs.is  eða í síma formanns  698-3791.  Nýjir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins og heimasíðunnar eru mjög velkomnir á fundinn –  margar hendur vinna létt verk.

 .

Léttar veitingar verða í boði.

.

kv

Stjórnin

Til félagsmanna

0

Tottenhamklúbburinn hefur sent til allra meðlima fréttablað og smá gjöf og ætti þetta að berast félagsmönnum á næstu dögum.  Þeir félagsmenn sem eru búsettir erlendis eru vinsamlegast beðnir að hafa samband á spurs(at)spurs.is með heimilisfang sem hægt er að senda á þar sem ekki er skráð heimilisfang á viðkomandi í þjóðskrá/póstskrá.

Á yfirstandandi tímabili fóru meðlimir yfir 330 sem er met síðan klúbburinn var stofnaður.   Væri gaman að auka enn við þann fjölda og geta núverandi félagsmenn hjálpað þar til með að fá Spursara sem þeir þekkja til að ganga í klúbbinn.

 .

kv

Stjórnin

FA CUP – undanúrslit

0

Tottenham leikur gegn Chelsea í undanúrslitum FA CUP á Wembley á sunnudaginn kemur kl. 17.00 að íslenskum tíma.   Tottenhamklúbburinn skorar á stuðningsmenn að fjölmenna á Ölver til að horfa á leikinn í góðra vina hópi og mynda skemmtilega stemmningu í kringum leikinn.

Tilboð verða á mat og mjöð  – nánari details um það koma vonandi inn á morgun.

Vonandi mæta sem flestir stuðningsmenn Tottenham á Ölver á sunnudag vel merkt Tottenham í bak og fyrir

 .

.

kv

Stjórnin

Gott stig á brúnni

0

Tottenham lék við Chelsea á Stamford Bridge á laugardaginn var.  Allt annað var að sjá til liðsins miðað við undanfarna leiki og var Tottenham betra liðið í leiknum þó að leikar hafi endað 0-0.  Tottenham var meira með boltann ,  fengu fleiri og betri færi og voru í raun óheppnir að fara ekki þaðan með þrjú stig í farteskinu. 

Nýjustu fréttirnar